move (IS)

Um viðburðinn

move (IS)
Norðurljós, Harpa
Fimmtudaginn 29. ágúst
19:00

Fyrir sjö árum síðan setti Óskar saman kvartett til að skoða lagahugmyndir sínar. Upp úr þessu þróaðist samstarf sem fór fram í vinnustofu Eyþórs Gunnarssonar og gekk út á að spila lögin endurtekið og velta þeim fyrir sér og prófa ólíkar nálganir. Samhliða því að tónlistin fór að taka á sig mynd byggðist upp sterkt samband á milli þeirra sem eiga sína upphafsstafi í nafninu MOVE sem auk Óskars og Eyþórs eru Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á bassa og Matthías Hemstock á trommur.

Á tímum tölvuvæðingar hafa handskrifaðar nótur orðið sjaldséðari en um leið tapast ákveðin fínni blæbrigði sem geta skipt máli. Óskar hefur fyrir löngu skapað sér persónulegan stíl í tónsmíðum sínum sem endurspeglast í rithöndinni og því hvað hann kýs að skrifa niður og hvað ekki.

Það helst einnig í hendur við þá nálgun sem hann leitar að í flutningnum sem er vandlega mótaður en um leið opinn fyrir hinu óvænta. Þetta tengist lönguninni til að lögin öðlist sjálfstætt líf og geti fengið að þroskast og breytast eftir því sem tíminn og aðstæður bjóða upp á.

Þó lögin séu textalaus bera þau öll nöfn sem eru sprottin af vangaveltum um lífið, tilveruna, fólk og fyrirbæri sem því tengist.
Skissubækurnar eru því einnig nokkurs konar dagbækur sem taka á málum sem koma upp í lífinu.

Nánast allar æfingar MOVE hafa verið hljóðritaðar og partur af vinnuferlinu er að hlusta yfir upptökurnar til að greina kjarnann í hverju lagi fyrir sig. Það eru ófár klukkustundirnar af efni sem hefur safnast upp og í leiðinni margir lítrar af sódavatni og úrvals kaffi sem hafa runnið niður.

Dropinn holar steininn og eftir allan þennan tíma eiga meðlimir MOVE núna sameiginlegan hugmyndaheim sem hægt er að stíga inn í og sjá hvert hann tekur bæði þá og áheyrendur í það og það skiptið.
Brottfararstaður hverju sinni liggja fyrir en svo má óvissuferðin byrja.

Óskar Guðjónsson: tenór og sópran saxofónn
Eyþór Gunnarsson: pianó
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson: kontrabassi
Matthías Hemstock: trommur

Sjá alla viðburði