Mikael Máni sóló (IS)

Um viðburðinn

Mikael Máni
Norðurljós, Harpa
Kl. 20:00

Mikael Máni gaf út sína fyrstu sólógítar plötu ‘Guitar Poetry’ í lok mars en platan kemur út hjá þýska útgáfufyrirtækinu ACT sem er eitt af leiðandi jazz útgáfum í Evrópu. Í tilefni af því heldur hann tónleika á jazzhátíð, á Ísafirði á opnunardegi hátíðarinnar 27. ágúst.

Mikael hefur gefið út þrjár plötur með bandi og fékk plata hans ‘Innermost’ nýverið Íslensku Tónlistarverðlaunin sem plata ársins í jazztónlist. Hinsvegar er þetta í fyrsta sinn sem hann mun flytja tónlist sína aleinn með gítarinn að vopni.
Stíll laganna heyrir ekki til venjubundinna greinahugtaka djasstónlistar. Það má heyra áhrif frá þjóðlagatónlist, bergmáli frá blús, bandarískri alþýðutónlist og einstökum kvikmyndatónlistarlegum blæ. Í líflegum og flæðandi spuna sameinar hann þetta á ljóðrænan hátt með skýrleika og hispursleysi söngvaskálds. Öll lögin á „Guitar Poetry“ segja sögur, opna rými og landslag, teikna myndir og eru spegilmynd gítarleikara sem er jafn óhefðbundinn og hann er tónlistarlega aðgengilegur, úthverfur introvert sem segir sögur í tónlistarlegri tjáningu af tilfinningu.

„..an impressionistic gem“ ⭐⭐️️⭐️⭐½“ ️

-Downbeat
Sjá alla viðburði