Hist og (IS)

Um viðburðinn

Hist og
Norðurljós, Harpa
21:00

Tríóið hist og var stofnað í lok árs 2017 til þess að rugla saman reitum raf-og djasstónlistar.

Tríóið skipa Eiríkur Orri Ólafsson, sem leikur á trompet, trommuheila og hljómboð, Róberta Andersen á gítar, bassa og hljómborð og Magnús Trygvason Eliassen á trommur og slagverk. Meðlimir tríósins beina stækkunarglerinu að sameiginlegum snertifleti sínum, með innhverfri, úthverfri og slagþungri blöndu af djass, raf-, og spunatónlist sem kemur víða við. hist og á að baki þrjár plötur, Days of Tundra (2019), hits of (2020), og holy ghost of (2023). Allar hlutu þær mikið lof og hefur hljómsveitin landað þremur tilnefningum til Íslensku Tónlistarverðlaunanna í djassflokki bæði 2020 og 2021, sem og sæti á Kraumslistanum öll árin. Days of Tundra hlaut viðurkenninguna “Spuni Ársins” Morgunblaðinu. Um _hits of_ skrifaði Arnar Eggert Thoroddsen hjá Morgunblaðinu ma. “Hörkustöff … stimpill þessa ofurtríós kirfilega á öllum smíðum.”

Meðlimir hist og hafa starfað um árabil með hinum ýmsustu hljómsveitum, svo sem múm, amiinu og Sin Fang, Sigur Rós, Kiru Kiru, Benna Hemm Hemm og Seabear, ásamt ótal samstarfsverkefna á sviði djasstónlistar með ADHD, Hilmari Jenssyni, Skúla Sverrissyni og Mógil.

Sjá alla viðburði