Kvintett Arnold Ludvig (FO/IS)
![](http://reykjavikjazz.is/wp-content/uploads/2024/07/11387d8d1e3f7ad1127eb5ac647174f2-1500x1000-c-default.jpg)
Um viðburðinn
Kvintett Arnold Ludvig (FO/IS)
Harpa, Norðurljós
Laugardagurinn 31. ágúst
20:00
Arnold Ludvig er bassaleikari frá Færeyjum og er forsprakki kvintettsins þar sem hann leikur með íslenskum jazztónlistarmönnum í fremstu röð. Þeir leika norrænan djass þar sem þeir skoða ólíka stíla eins og latín, fönk, blús, þjóðlagatónlist og spunatónlist er allsráðandi.
Með Arnold Ludvig spila:
Sigurður Flosason, saxófónn
Jóel Pálsson, saxófónn
Kjartan Valdemarsson, píanó
Einar Scheving, trommur