Benjamín Gísli Tríó (IS/NO)

Um viðburðinn

Line Of Thought – Útgáfutónleikar.

Tríó píanóleikarans Benjamíns Gísla Einarssonar heldur tónleika í tilefni af útgáfu sinnar fyrstu plötu, Line Of Thought. Platan er gefin út í samstarfi við Reykjavík Record Shop og Fjorgata Records. Með Benjamín Gísla leika þau Andreas Solheim á kontrabassa og Veslemøy Narvesen á trommur.

Með hrífandi hljómi, sterkri nærveru og grípandi tónsmíðum nær Tríó Benjamíns Gísla að fanga áhorfandann frá fyrsta hljómi. Tónlistin byggir á norrænu djass hefðinni en er einnig innblásin af ljóðrænum laglínum Bill Evans, melankólískum leik Esbjörns Svenssons tríós og frjálsum spuna Cörlu Bley. Tónsmíðar Benjamíns Gísla taka hlustandann á ferðalag þar sem spilað er á heim tilfinninga og hugarástands. Fallegar og töfrandi laglínur, með impressionískum hljómum ásamt taktföstu hljóðfalli, öðlast tilveru með samspili hljóðfæraleikaranna þriggja.

Benjamín Gísli Einarsson er píanóleikari og tónskáld búsett í Noregi. Hann virkur í norsku tónlistarsenunni og kemur þar reglulega fram á stærstu djasstónlistarhátíðunum og klúbbunum þar í landi. Benjamín Gísli gaf nýlega út plötur með hljómsveitunum Bliss Quintet og Bento Box Trio sem hafa hlotið góða dóma í Jazz Wise (UK), Jassnytt (NO) og Ballade (NO).

Benjamín Gísli Einarsson : píanó og lagasmíðar
Andreas Solheim : kontrabassi
Veslemøy Narvesen : trommur og sög

 

 

 

 

Sjá alla viðburði