Budvar hefur verið diggur bakhjarl Jazzhátíðar Reykjavíkur síðustu ár og tileinkum við þeim heilt svið á hátíðinni. Sviðið er staðsett á Hörpuhorni til móts við Eldborg. Dagskrá Budvarsviðsins er opin og aðgangur ókeypis. Hér er unga fólkið í fararbroddi ásamt því að þaulreyndir jazzarar leiða jamsessionir þar sem öllum er frjálst að taka þátt.
Miðvikudagur 10.ágúst
kl 17:30 – Setning Hátíðar, ótrúlegar ræður og töfrandi tónlist.
kl 22:00 – Jamsession, leiðari: Stefan Bauer.
Fimmtudagur 11.ágúst
kl 17:00 – Happy Hour – Anna Sóley og hljómsveit
kl 22:00 – Jamsession, leiðari: Richard Andersson
Föstudagur 12.ágúst
kl 17:00 – Happy Hour – Sara Blandon og hljómsveit
kl 23:05 – Jamsession, leiðari: Anna Gréta Sigurðardóttir
Laugardagur 13.ágúst
kl 15:00 – Fjölskyldutónleikar – jazz fyrir yngstu áheyrendurna.
kl 16:00 – Hljómsveitin Carioca leikur músík frá Brasilíu.
kl 23:05 – Jamsession, leiðari: Eyþór Gunnarsson