María Magnúsdóttir og Hjörtur Ingvi Jóhannsson

Um viðburðinn

María Magnúsdóttir og Hjörtur Ingvi Jóhannsson (IS)
Sunnudagur 31. ágúst kl. 18:00
SKÝ Bar
Ókeypis aðgangur

 

Söngkonan María Magnúsdóttir og píanóleikarinn Hjörtur Ingvi Jóhannsson stilla saman strengi sína á tónleikum á SKY bar á Jazzhátíð Reykjavíkur. María og Hjörtur Ingvi eru flytjendur í fremstu röð á Íslandi, þau lögðu bæði stund á jazz nám í Hollandi og koma reglulega fram saman og í sitthvoru lagi. Þau eru samstarfsfólk til margra ára og munu á tónleikunum flytja sína allra-uppáhalds jazzstandarda auk popplaga í nýjum búningi. Tónleikarnir verða á SKY bar þann 31. ágúst kl 18, verða um klukkustund að lengd og öllum opnir.