Los Bomboneros (IS)

Um viðburðinn

Los Bomboneros (IS)
Miðvikudaginn 27. ágúst kl. 17:30
Hafnartorg Gallery
Ókeypis aðgangur

Hljómsveitin Los Bomboneros kemur fram í Hafnartorgi Galleryi miðvikudaginn 27. ágúst kl. 17:30. Hljómsveitina skipa Alexandra Kjeld (söngur, bassi), Daníel Helgason (tresgítar), Kristofer Rodriguez Svönuson (slagverk og bæjarlistamaður Kópavogsbæjar), Matthías M. D. Hemstock (slagverk) og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir (básúna, fiðla, söngur). Hljómsveitin hefur sérhæft sig í tónlist Mið- og Suður-Ameríku ásamt frumsömdu efni og hefur koma víða fram við miklar vinsældir tónleikagesta en tónleikar sveitarinnar eiga það gjarnan til að breytast í funheitt danspartý. Ókeypis aðgangur.