Kham Meslien (FR)

Um viðburðinn

Kham Meslien Solo (FR)
Fimmtudaginn 28. ágúst kl. 19:00
Harpa, Norðurljós
Kvöldpassi*

Ljósmyndari : Marine Brehin

Eftir tuttugu ára tryggð við hljómsveitina Lo’Jo ákvað Kham Meslien að láta strengina á kontrabassanum leiða listræna stefnu ferils síns og koma meira fram einn. Héðan í frá ætlar hann að fylgja minna formföstum slóðum tónlistarinnar – þar sem frelsið ræður ríkjum: djass og spuninn sem mótast af augnablikinu. Fyrsta sólóverk hans, Fantômes… Futurs, var skrifað og mótað á sviði. Kham Meslien hefur komið fram í öllum heimsálfum, allt frá stórum sviðum stórborga til eyðimarka Ástralíu og Bandaríkjanna. Hann leikur einnig með tríóinu Sweet Back og hefur unnið með fjölmörgum alþjóðlegum listamönnum – bæði á sviði og í hljóðveri – svo sem Robert Plant, Archie Shepp og Robert Wyatt. Tónsmíðar Kham minna á víðáttur náttúrunnar; hann nýtir frásagnarkraft kontrabassans og hlýjuna sem býr í grípandi laglínum. Með hjálp meðal annars looper-tækja og slagverka, kannar hann hljóma hljóðfærisins, og hann kallar fram andrúmsloft sem minnir á fyrstu sólóplötur Henri Texier eða píanistans Nils Frahm.

Í júlí á þessu ári mun Kham Meslien gefa út nýja EP plötu en þar má finna endurhljóðblandanir á fjórum lögum frá eftir listamenn á borð við Paul Kendall (Mute Records, Alan Wilder frá Recoil…), Chapelier Fou (Les Contes du Paris Perché, Les Métamorphoses de Mr. Kalia…), Souleance (Fulgeance + Soulist, What The Funk, Peter Digital Orchestra…) og Dub Promozione (Totem, Femi Kuti…).

Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar í Hörpu en hann veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Allir tónleikar fara fram í Norðurljósasal á 2. hæð. Ekki er selt inn á staka tónleika á kvölddagskrá í Hörpu.*

Sjá alla viðburði