Jam session

Um viðburðinn

Jam session
BIRD
Laugardagur 30. ágúst
23:00
Ókeypis aðgangur

Það er  laugardagur og því ekki úr vegi að enda kvöldið á jam session til lokunar. Listamenn hátíðarinnar skipa húsbandið og eftir að þeir hafa leikið nokkur lög er hverjum sem vill frjálst að vera með í fjörinu. Vertu viss um að taka lúðurinn, lútuna, kjuðana eða bara fingurna (ef þú ert píanóleikari) með og gerum þetta að jazzveislu sem gleymist seint! Ekki gleyma að taka hljóðfærið með!

Sjá alla viðburði