Cécile McLorin Salvant

Um viðburðinn
Cécile McLorin Salvant
Sunnudagur 31. ágúst kl. 20:00
Harpa, Eldborg
*Jazzpass : 20% afsláttur veittur handhöfum Jazzpassa
Cécile McLorin Salvant er ein eftirsóttasta jazzsöngkona heims um þessar mundir og hefur hrifið hlustendur um víða veröld fyrir einstaklega tjáningarríka og magnaða söngrödd, frumlegt verkefnaval og sterkar og grípandi lagasmíðar.
Hún hefur sent frá sér sex rómaðar breiðskífur og komið fram á tónleikum víða um heim við frábærar undirtektir. Salvant er þrefaldur Grammy-verðlaunahafi og hefur að auki hlotið þrjár Grammy-tilnefningar og fjölda annarra viðurkenninga og verðlauna fyrir tónlistarflutning sinn. Má þar nefna gagnrýnendaverðlaun tónlistartímaritsins DownBeat og almannaútvarpsins NPR sem og hinn virta MacArthur Fellowship-styrk árið 2020.
“Söngkona af þessu tagi kemur ekki fram nema einu sinni til tvisvar á öld.” – Wynton Marsalis
Cécile McLorin Salvant er fædd í Bandaríkjunum árið 1989 en rekur uppruna sinn til Haítí, Túnis og Frakklands. Hún nam lögfræði og óperusöng áður en hún sneri sér að jazzsöng en hún vakti fyrst verulega athygli árið 2010 þegar hún bar sigur úr býtum í jazzsöngkeppninni Thelonious Monk Jazz Vocal Competition. Salvant hefur sent frá sér sex breiðskífur sem bera vott um einstaka víðsýni, forvitni og tilraunagleði í verkefnavali og lagasmíðum. Blús og barokk, jazz, popp og gospeltónlist og þjóðlagahefðir allra heimshorna renna þar saman við eigin tónlist Salvant sem miðlar af einstöku listfengi og djúpu næmi fyrir kjarna tónlistarinnar hverju sinni.
Á efnisskránni í Eldborg 31. ágúst, á lokatónleikum Jazzhátíðar Reykjavíkur, verður blanda af frumsaminni og eldri tónlist úr ýmsum áttum.
Hljómsveit:
Sullivan Fortner (píanó)
Yasushi Nakamura (bassi)
Kyle Poole (trommur)