Barnadjass, SVoM og Jazzhátíð Reykjavíkur

Um viðburðinn

Barnadjass, SVoM og Jazzhátíð Reykjavíkur taka höndum saman
Iðnó
Sunnudaginn 31. ágúst kl 16:00
Ókeypis aðgangur

Á þessum tónleikum, sem styrktir eru af Barnamenningarsjóði, mun Stórsveit SVoM, Litlasveit og Djasskrakkar koma fram í Iðnó á Jazzhátíð Reykjavíkur.

Hljómsveitin Djasskrakkar eru gestgjafar hátíðarinnar Barnadjass í Mosó. Hljómsveitin er skipuð sex börnum á aldrinum 10-15 ára sem lært hafa að leika djass eftir eyranu undir handleiðslu Odd André Elveland, stofnanda barnadjasstónlistarskólans Improbasen í Osló. Hljómsveitina skipa Edda Margrét (klarinett/saxófónn), Emil Huldar (píanó), Helga Margrét (trommur), Rakel Elaisa (trompet), Sigríður Sóllilja (kontrabassi) og Svandís Erla (saxófónn). Sunna Gunnlaugsdóttir, jazzpíanisti og tónskáld mun leiða hópinn sem flytur m.a. tvö ný lög, annað eftir Sunnu og hitt eftir Karl Olgeirsson.

Litlasveit og Stórsveit SVoM eru bæði afsprengi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og Miðbæjar (SVoM) sem Ingi Garðar Erlendsson stjórnar. Litlasveit samanstendur af sex meðlimum SVoM sem njóta þess að spila saman og semja eigin tónlist.

Hljómsveitin er tiltölulega nýstofnuð en var formlega mynduð í byrjun þessa árs. Litlasveit spilar tónlist sem er innblásin af margvíslegum þáttum, svo sem djassi, rokki og nútímatónlistarstefnum. Hljómsveitina skipa þeir Björn (rafbassi og gítar), Frosti Pétur (trompet), Ísar Orri (trommur), Kári Kolbeinn (píanó), Styrkár Flóki (túba) og Tryggvi Kristinn (saxófónn).

Stórsveit SVoM samanstendur af 25 hljóðfæraleikurum á aldrinum 14-16 ára. Þau hafa tekið þátt í árlegu stórsveitarmaraþoni Stórsveitar Reykjavíkur undanfarin ár. Sveitin kemur fram undir stjórn Samúels Jóns Samúelssonar.
Sjá alla viðburði