Sara Magnúsdóttir

Hammond leikarinn og tónskáldið Sara Magnúsdóttir heldur útgáfutónleika á sinni fyrstu plötu A Place to Bloom á Jazzhátíð Reykjavíkur. Sara hefur verið búsett í New York borg í nokkur ár þar sem hún hefur stundað tónlistarnám. Platan dregur innblástur af útþrá og heimþrá, að geta fundið upplifað sig heima á mörgum stöðum líkt og Sara hefur gert. Tónlist Söru er melódísk jazz tónlist sem er rík af sál og grúvi undir áhrifum af hefðbundnum hammond orgel djass. 

Með Söru leika einvala hljóðfæraleikarar, Jóel Pálsson á tenór saxófón,
Andrés Thor Gunnlaugsson á gítar,
Einar Scheving á trommur,
Tumi Torfason á trompet.