María Magnúsdóttir (MIMRA)

María steig sín fyrstu skref í tónlist í Skólakór Garðabæjar og í Tónistarskóla Garðabæjar. Hún lauk burtfarar- og kennaraprófi frá Tónlistarskóla FÍH 2008. Áður en hún hélt utan í frekara nám í tónlist starfaði hún hér á landi sem tónlistarkennari, stýrði og útsetti fyrir Gospelkór Jóns Vídalíns, Gospelkór Árbæjarkirkju og Sönghóp Garðaskóla. María söng um árabil með Gospelkór Reykjavíkur og kom þar fram margoft á stórtónleikum kórsins og í stærri verkefnum, meðal annars sem einsöngvari á stórtónleikum Sálarinnar hans Jóns míns í Laugardalshöll 2006 og 2008.
Á árunum 2011 – 2016 bjó María fyrst í Hollandi þarsem hún lauk Bachelor prófi í jazzsöng og tónsmíðum við Konunglega listaháskólann í Haag. Eftir það lá leiðin til London þar sem María lauk gráðunni Master of Popular Music með áherslu á hljóðupptökur og tónsmíðar fyrir miðla.
María hefur komið víða við í tónlist, hefur starfað sem söngkona og flutt eigið efni og annarra síðan 2006. Hún gaf út sína fyrstu sólóplötu 2009 sem bar heitið Not Your Housewife. Platan kom út í sjálfstæðri útgáfu á Íslandi, tekin upp í samstarfi við Börk og Daða Birgisson. María samdi kórverkið Guðnýjarljóð við þrjú af ljóðum Guðnýjar Jónsdóttur frá Klömbrum fyrir Kvennakórinn Kötlu á haustmánuðum 2015 með styrk frá Tónskáldasjóði 365 og STEF, en verkið var frumflutt á Listasafni Íslands við hátíðlega athöfn í apríl 2016.
María er frábær jazzsöngkona og kemur reglulega fram ásamt jazzkvartett/kvintett. Hún hefur komið fram á Jazzhátíð Reykjavíkur, jazzklúbb Múlans , tónleikaröð Jómfrúnnar og á Jazzhátíð Garðabæjar. María hefur síðustu ár samið og útsett orchestral-popptónlist undir listamannsheitinu MIMRA. Fyrsta plata MIMRU kom út í október 2017 og ber heitið Sinking Island. Platan er heildstætt verk út í gegn þar sem María er ekki eingöngu flytjandi og höfundur heldur sá einnig um upptökustjórn og hljóðhönnun.
María starfar nú á nýjan leik á Íslandi sem virk og skapandi tónlistarkona og sem söng- og lagasmíðakennari í Tónlistarskóla FÍH, Menntaskóla í Tónlist og við Listaháskóla Íslands.