Fréttir

Borgarbókasafn Grófinni – Opening Ceremony

Miðborgin iðar af jazztónum dagana 5.-9. september þegar fram fer Jazzhátíð Reykjavíkur 2018. Íslenskt jazzlíf hefur aldrei staðið styrkari fótum en nákvæmlega núna og á hátíðinni gefst færi til að hlýða á framvarðarsveitir í faginu en ekki síður er spennandi samstarf íslenskra flytjenda og erlendra sem er fyrirferðamikið að þessu sinni.

Setningarathöfn Jazzhátíðar í ár mun fara fram á Borgarbókasafni kl. 17:30 eða í beinu framhaldi af skrúðgöngu sem hefst á Hlemmi kl. 17:00. Boðið verður upp á margslungin tónlistaratriði og stuttar og skemmtilegar ræður. Frítt inn!