Fréttir

Listasafn Íslands – Hilmar Jensson solo

Á upphafsdegi Jazzhátíðar í ár verður boðið upp á röð örtónleika í Listasafni Íslands. Hverjir tónleikar eru 30 mínútur að lengd og fara þeir fram í tveimur sölum hússins. Smelltu hér fyrir miðasölu.

Það þarf varla að kynna Hilmar Jensson fyrir íslensku áhugafólki um jazztónlist. Á þessum tónleikum mun hann flytja einleik á rafgítar en hann er þekktur fyrir að fara oft ótroðnar slóðir og bjóða upp á ævintýralega túlkun og hljóðheima sem eiga sér fáa líka.

Hilmar byrjaði að spila á gítar þegar hann var u.þ.b. sex ára og hóf tónlistarnám ellefu ára. Hann lauk námi við tónlistarskóla FÍH árið 1987, hlaut Bachelor gráðu við Berklee árið 1991 og hlaut einkakennslu frá Mick Goodrick, Jerry Bergonzi, Hal Crook og Joe Lovano. Hann hefur tekið upp og flutt tónlist um víðan völl og hefur komið fram á yfir 50 plötum, þar af 8 sem hljómsveitarstjóri. Hann hefur komið fram í 35 löndum með tríói sínu TYFT, AlasNoAxis (Jim Black), MadLove (Trevor Dunn), Mogil, Outhouse, BMX og mörgum öðrum. Hilmar einnig einn af stofnendnum listasamtakanna Kitchen Motors/Tilraunaeldhússins.

Hilmar Jensson hefur komið fram með alls kyns tónlistarfólki og má þar til að mynda nefna: Tim Berne, Andrew D’Angelo, Jim Black, Chris Speed, Skuli Sverrisson, Trevor Dunn, Herb Robertson, Eyvind Kang, Hank Roberts, Marc Ducret, Tom Rainey, Peter Evans, Ben Perowski, Jamie Saft, Ches Smith, Wadada Leo Smith, Arve Henriksen, Audun Kleive, Bugge Wesseltoft, Per Jörgensen, Per Oddvar Johansen, Anders Jormin og fleiri og fleiri.