Reykjavík Jazz hátíðin fer fram í lok ágúst og við leitum að kraftmiklu og jákvæðu fólki til að ganga til liðs við hópinn okkar á meðan á hátíðinni stendur og aðstoða við ýmislegt sem fellur til.
Á dagskrá eru um 30 tónleikar og við þurfum fleiri hendur til að hjálpa til við að halda öllu gangandi – hvort sem það er að taka á móti gestum, keyra listafólk til og frá flugvellinum, aðstoða baksviðs eða sinna öðrum verkefnum tengdum hátíðinni. Hér er eitthvað fyrir öll.
Sex daga tónlistarveisla og góð stemning
Að vinna sem sjálfboðaliði á Reykjavík Jazz er frábær leið til að upplifa tónlistarhátíð þar sem við upplifum góða tónlist og kynnumst skemmtilegu fólki.
Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga:
- Hátíðin fer fram dagana 26.–31. ágúst, en opnunarviðburðurinn verður 25. ágúst kl. 17:00.
- Sjálfboðaliðar fá frían aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
- Það er engin skyldumæting – þú velur sjálf/ur/t hvenær þú kemur. Láttu okkur bara vita af framboðinu þínu svo við getum skipulagt vaktir.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, jafnvel bara einn dag, þá viljum við endilega heyra frá þér! Skráðu þig og vertu hluti af Reykjavík Jazz 2025 teyminu!