Miðasala er hafin

Miðasala á Reykjavík Jazz (Jazzhátíð Reykjavíkur) hófst í síðustu viku. Nú er hægt að kaupa kvöldpassa á tónleikana í Hörpu, Jazzpassa og á tónleika Cécile McLorin Salvant.

Kvöldpassi 26. ágúst
Kvöldpassi 27. ágúst
Kvöldpassi 28. ágúst
Kvöldpassi 29. ágúst
Kvöldpassi 30. ágúst

Jazzpassi – við viljum vekja athygli á að við munum bjóða upp á early bird og forsöluverð áður en við bjóðum upp á fullt verð, því hvetjum við ykkur til að kaupa passa núna á meðan verðið er sem lægst. Þann 1. júní mun verðið hækka og svo aftur 1. ágúst.
Þróunina má sjá hér:
21.990 kr. (til 31. maí)
24.990 kr. (til 31. júlí)
29.990 kr. fullt verð

Passinn gildir á alla tónleika hátíðarinnar nema á tónleika Cécile McLorin Salvant.*

Cécile McLorin Salvant kemur fram ásamt hljómsveit. Hún er 3faldur Grammy-verðlaunahafi og tónleikar hennar fara fram í Eldborg, Hörpu.
Miðasala er komin á fullt. Hlekkur á sölu má finna hér.

Við viljum að auki vekja athygli á að passahafar fá 20 % afslátt ef keyptir eru miðar á tónleika Cécile.*